Íslandsmót stúlknasveita

Á myndinni má sjá keppendur Lundarskóla með verðlaun sín sem besta landsbyggðarsveit.
Frá vinstri: …
Á myndinni má sjá keppendur Lundarskóla með verðlaun sín sem besta landsbyggðarsveit.
Frá vinstri: Eyrún Erla Árnadóttir, Unnur Birna Valdez, Steinunn Erla Guðmundsdóttir og Harpa Hrafney Karlsdóttir

Nemendur úr fimmta bekk Lundarskóla tóku þátt í Íslandsmóti stúlknasveita í skák (3-5. bekk), sem fram fór í Kópavogi 27. janúar sl. Stúlkurnar stóðu sig með prýði og höfðnuðu í sjöunda sæti ásamt því að hljóta verðlaun fyrir bestu landsbyggðarsveitina.
Íslandsmeistari var sveit Smáraskóla
Á myndinni má sjá keppendur Lundarskóla: frá vinstri Eyrún Erla Árnadóttir, Unnur Birna Valdez, Steinunn Erla Guðmundsdóttir og Harpa Hrafney Karlsdóttir og óskum við þeim innilega til hamingju með árangurinn.