Tengiliður

Öll börn og foreldrar skulu hafa aðgang að tengilið þjónustu í þágu farsældar barns eftir því sem þörf krefur. Hlutverk tengiliðar er fyrst og fremst að veita upplýsingar, aðstoða foreldra og barn og styðja við samþættingu á fyrsta stigi í samræmi við óskir foreldra og/eða barns.

Foreldrar og börn geta alltaf leitað sjálf til tengiliðar í nærumhverfi barnsins og óskað eftir samþættri þjónustu. Þá er einnig hægt að senda beiðni um tengilið í gegnum Þjónustugátt Akureyrarbæjar

Tengiliður Lundarskóla er:
Fjóla Dögg Gunnarsdóttir, deildarstjóri eldra stigs
fjolad@akmennt.is

Helga Rún Traustadóttir, deildarstjóri yngra stig
helgarun@akmennt.is