Óveður


Viðbrögð í grunnskólum þegar tvísýnt er um færð og veður

  1. Meginreglan er sú að leik -og grunnskólar eru opnir nema lögregla gefi út tilmæli um að fólk sé ekki á ferli.
  2. Ef skólahald fellur niður þá sendir skóladeild tilkynningu þess efnis á RÚV og Bylgjuna fyrir kl. 7.00 að morgni.
  3. Öllum skólum ber að setja tilkynningu á heimasíðu í þeim tilfellum sem tvísýnt er með veður og færð eða þegar skólahald er fellt niður. Einnig skulu skólar senda út póst í Mentor með sömu tilkynningu.
  4. Við tvísýnar aðstæður sem geta verið breytilegar eftir bæjarhlutum þá er það ávallt foreldra/forráðamanna að meta hvort þeir treysti börnum sínum í skólann og fylgi þá nemendum í 1.-7.bekk inn í skólann.
    Mikilvægt er að láta skólann vita ef barnið er heima með því að hringja í síma 462-4888 eða senda tölvupóst á ma@akmennt.is
  5. Ef skólahaldi er ekki aflýst er tryggt að starfsfólk sé til staðar á auglýstum skólatíma í öllum skólum. Börn sem koma í skólann eru ekki send heim áður en skólatíma lýkur.