Skólahúsnæði Lundarskóla

Fimmtudaginn 25.júní voru endanlegar ákvarðanir teknar varðandi skólahúsnæði Lundarskóla. Það er mikið gleðiefni fyrir alla sem starfa í skólasamfélaginu að þessi mál séu komin í gott ferli. Við hlökkum til að vinna í samvinnu við Akureyrarbæ að endurbótum og miðum að góðu og faglegu skólastarfi til framtíðar. Hér má sjá fréttatilkynningu frá Akureyrarbæ.