Skólasetning

Skólasetning Lundarskóla skólaárið 2023-2024 verður þann 22.ágúst á eftirfarandi tímum:
2.- 4. bekkur kl. 9:00
5. - 7. bekkur kl. 10:00
8. - 10. bekkur kl. 11:00

Skólastjóri setur skólann og eftir það fara nemendur með umsjónarkennurum í stofu þar sem þeir fá upplýsingar um skólastarfið. Nemendur í 1. bekk mæta í viðtöl samkvæmt sérstökum pósti frá umsjónarkennurum.
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 23. ágúst hjá öllum árgöngum nema 1. bekk sem byrjar í viðtölum 22. og 23. ágúst. Kennsla hefst hjá þeim fimmtudaginn 24. ágúst.
Frístund verður opin frá og með 22. ágúst skv. skráningu nemenda í Frístund. Nánari upplýsingar um Frístund og starfið þar veitir nýr umsjónarmaður Frístundar sem heitir Íris Björk Árnadóttir.

Hér í fréttabréfi fyrir ágúst má svo lesa nánar um upphaf skólaársins