Skólaslit og útskrift

Skólastlit

Skólaslit Lundarskóla verða þann 8. júní kl. 9:00 fyrir nemendur í 1. – 9. bekk. Skólaslitin verða með rafrænum hætti.

Útskrift nemenda í 10. bekk verður mánudaginn 7. júní kl. 15:00 í sal Lundarskóla við Dalsbraut. Foreldrar nemenda í 10. bekk hafa fengið boð um að skrá sig sérstaklega ef þeir ætla að koma á útskriftina. Eftir útskrift verða léttar veitingar í boði fyrir nemendur og starfsfólk skólans.

7. júní kl. 15:00 (1 - 2 klst.)

Útskrift hjá 10. bekk í sal Lundarskóla

Veitingar fyrir nemendur og starfsfólk

8. júní kl. 9:00 ( ca. 1 klst.)

Skólaslit í heimastofum.

Við þökkum fyrir gott samstarf á skólaárinu 2020 - 2021 og hlökkum til að takast á við verkefnin sem bíða okkar næsta skólaár.

Sumarkveðja frá skólastjórnendum Lundarskóla,

Elías, Fjóla Dögg og Maríanna