24.03.2022
Upphátt sem er upplestrarkeppni grunnskólanna á Akureyri fór fram í gær þann 23.mars í Menntaskólanum á Akureyri.
Fyrir hönd Lundarskóla tóku þátt þau Ísafold Gná Ólafsdóttir og Hákon Freyr Arnarsson. Varamaður var Kristín Kara Hreinsdóttir.
Keppendur stóðu sig einstaklega vel og voru Lundarskóla svo sannarlega til sóma.
Markmiðið með upplestrarkeppninni er m.a. að efla lestur, þjálfa framkomu og framburð ásamt því að kynna fyrir nemendum fjölbreytta rithöfunda og verk þeirra.
23.03.2022
Útivistardagur Lundarskóla verður þriðjudaginn 29. mars.
Nemendur í 1.- 4. bekk fara í Hlíðarfjall g og mega koma með þotu eða sleða. Nemendur í þessum árgöngum sem eru fullfærir um að fara sjálfir á skíði og eiga búnað mega fara á skíði.
Nemendur í 5.- 6. bekk hafa fengið val um að fara á skauta eða í Hlíðarfjall á skíði, bretti, þotu eða sleða. Þeir sem ætla á skauta fá lánaða skauta en þeir sem ætla í Hlíðarfjall þurfa að koma sjálfir með búnað.
Nemendur í 7.- 10. bekk hafa fengið val um að fara á skauta eða í Hlíðarfjall á skíði, bretti, þotu eða sleða. Þeir sem ætla á skauta fá lánaða skauta en þeir sem ætla í Hlíðarfjall geta sjálfir komið með búnað. Þeir sem ekki eiga búnað fá hann að láni. Íþróttakennarar hafa tekið niður pantanir.
22.03.2022
Laugardaginn næsta þann 26.mars kl. 14:00 munu nemendur í 10.bekk halda Bingó en það er liður í fjáröflun fyrir útskriftarferð þeirra.
11.03.2022
Á foreldraviðtalsdegi þann 14. mars verða 6. bekkingar með veitingasölu til styrktar Reykjaferð eins og á haustönn.
Þeir hafa, með dyggri aðstoð foreldrasinna, bakað skinkuhorn, pizzusnúða,möffins, brauðbollur, bananabrauð, kryddbrauð, skúffukökur, pönnsur og meira að segja steikt kleinur!